Fara í efni
Vúbb

Fólkið á bak við Vúbb.

Við erum tveir tölvunarfræðingar sem höfum unnið saman að alls kyns verkefnum. Við stofnuðum Vúbb til að smíða alvöru lausnir fyrir fólk sem við tölum beint við, ekki fyrir nafnlausa deild inni í stórri stofu.

Við tveir.

Þegar þú vinnur með Vúbb vinnur þú með okkur. Sömu tveir frá fyrsta fundi þar til lausnin fer í loftið, og enginn sem þú hefur aldrei hitt.

Helgi Freyr Davíðsson

Helgi Freyr Davíðsson

Forritari

Jonathan Jakub

Jonathan Jakub

Forritari

Af hverju bara við tveir

Við hefðum getað reynt að líta út fyrir að vera stærri en við erum. Við ákváðum að gera það ekki. Hvert verkefni fær fulla athygli okkar beggja og þér er aldrei vísað á einhvern sem hefur ekki lesið verkefnislýsinguna þína.

Það þýðir líka að við vinnum hratt. Ákvarðanir fara ekki í gegnum mörg lög af samþykktum, og ef eitthvað virkar ekki tökum við eftir því strax og lögum það. Við smíðuðum það jú sjálfir.

Hvað það þýðir fyrir þig

Þú talar beint við okkur, frá fyrsta samtali þar til lausnin fer í loftið. Við spyrjum þangað til við skiljum vandamálið og smíðum lausn sem passar því, ekki sniðmát með merkinu þínu á.

Við vinnum eftir skýru plani og viðurkenndum aðferðum úr hugbúnaðarverkfræði. Þú veist alltaf hvar verkefnið stendur og hvað kemur næst.

Hvernig við vinnum.

01

Við hlustum

Við byrjum á að kynnast þér, viðskiptavinum þínum og vandamálinu sem þarf að leysa.

02

Við mótum

Við hugsum lausnina til enda með þér, hvernig hún á að líta út og hvernig hún á að virka, áður en ein lína af kóða er skrifuð.

03

Við byggjum

Við hönnum og forritum allt sjálfir og þú getur fylgst með allan tímann. Engar óvæntar uppákomur í lokin.

04

Við fínpússum

Við prófum allt vel, lögum það sem þarf og tryggjum að lausnin virki nákvæmlega eins og hún á að gera.

05

Við förum í loftið

Við komum lausninni í loftið og sjáum til þess að allt gangi smurt frá fyrsta degi.

Viltu vinna með okkur?

Segðu okkur frá hugmyndinni þinni og við heyrum í þér fljótlega.